Verkfæri |
Zenon frá TarsosZenon frá Tarsos (forngríska: Ζηνων) var stóískur heimspekingur og nemandi Krýsipposar. Hann tilheyrði tímabili miðstóuspekinnar. Zenon nam ásamt Díogenesi frá Babýlon og Antípater frá Tarsos. Kenningar Zenons í stóuspeki eru ókunnar en hann tók við af Krýsipposi. Díogenes tók síðar við af Zenoni en ekki er vitað hve lengi Zenon var í forsvari fyrir stóuspekina. Svo virðist sem hann hafi fallist á allar kenningar stóuspekinnar fyrir utan að hann hafnaði því að heimurinn myndi farast í eldi. [breyta] Tengt efni[breyta] Heimild
|
|||||||||||||||||