William Shakespeare

Hið umdeilda Chandos-málverk er talið vera af Shakespeare.
Hið umdeilda Chandos-málverk er talið vera af Shakespeare.

William Shakespeare (26. apríl 156423. apríl 1616) var enskur leikari, leikskáld og ljóðskáld. Hann samdi um 38 leikrit, 154 sonnettur og önnur ljóð. Leikrit hans náðu töluverðum vinsældum meðan hann lifði og eftir að hann lést varð hann smám saman mikilvægari í samhengi bókmennta á ensku og nú á dögum er ekki óalgengt að hann sé kallaður mesti rithöfundur á enskri tungu fyrr og síðar. Hann hefur jafnan verið kallaður þjóðarskáld englendinga þ.e. Hirðskáldið (The Bard).

Leikritunarferli Shakespeares er stundum skipt í þrjá meginhluta; fyrstu gamanleikina og sögulegu leikritin (t.d. Draumur á Jónsmessunótt og Hinrik IV, 1. hluti), miðtímabilið þegar hann skrifar flesta frægu harmleikina (eins og Óþelló, Makbeð, Hamlet og Lé konung) og seinni rómönsurnar (Vetrarævintýri og Ofviðrið). Mörg af leikritunum eru endurgerðir eldri leikrita líkt og þá tíðkaðist.

Helgi Hálfdánarson, hefur þýtt öll leikrit Shakepeares á íslensku og telja margir þýðingar hans einstakar. Helgi viðheldur stakhendu (blank verse) frumtextans, en notast auk þess einnig í hverri línu við stuðla, og sumstaðar við stuðla og höfuðstaf.

[breyta] Tenglar

Commons
Wikimedia Commons hefur upp á að bjóða margmiðlunarefni tengt:
  Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


SEO Tools wymiana linkami SEO Tools tanie kredyty gotówkowe kreatyna Plaza 3 star hotel Los Angeles krynica noclegi Sejm Tyk