VerkfæriÁ öðrum tungumálum
|
ReikistjarnaReikistjarna eða pláneta er heiti yfir tiltölulega stórt, hnöttótt geimfyrirbæri á sporbaug um sólstjörnu, sem er þó ekki stjarna sjálft. Yfirleitt er þó átt við reikistjörnurnar, sem eru átta stærstu fylgihnettir sólar: Merkúr, Venus, jörðina, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus frá sólu talið. Hugtakið reikistjarna hefur þó enga nákvæma vísindalega skilgreiningu og er umdeilt. Flestar voru reikistjörnurnar taldar níu talsins frá árinu 1930, en Alþjóðasamband stjarnfræðinga ákvað 24. ágúst 2006 að telja Plútó ekki lengur reikistjörnu, heldur dvergreikistjörnu. Gliese 581 c er reikistjarna utan sólkerfisins í um 20 ljósára fjarlægð frá jörðu og sýnist lífvænleg.
Samsett mynd af sólinni ásamt reikistjörnunum (skv. Alþjóðasambandi stjarnfræðinga) sem um hana ganga, í réttum stærðarhlutföllum:
1. Merkúríus 2. Venus 3. Jörðin 4. Mars 5. Júpíter 6. Satúrnus 7. Úranus 8. Neptúnus
[breyta] Nafnsifjar orðsins „reikistjarna“
Orðið reikistjarna er stundum ekki notað sem algjört samheiti plánetu (e. planet):
Í dag er orðið „planet“ í ensku venjulega ekki notað um sólstjörnur eða hnetti sem hafa ekki sporbaug um sólstjörnu. Þ.a.l. myndi enginn telja tunglið eða sólina til plánetu í dag. [breyta] Nafnsifjar orðsins „pláneta“Orðið pláneta er ættað af gríska orðinu πλανήτης (umritað: planētēs) sem þýðir flakkari. [breyta] Tengt efni[breyta] Heimildir
[breyta] Tengill
|