Október er tíundi mánuður ársins og er nefndur eftir latneska orðinu octo sem þýðir átta. Október var áttundi mánuðurinn í latneska dagatalinu, en janúar og febrúar voru 11. og 12. mánuður ársins, sem þá hófst 1. mars.