|
|
Maníla
Maníla (Manila) höfuðborg Filippseyja, stendur á stærstu eyju eyjaklasans; Luzon við austanverðan Manílaflóa. Höfuðborgarsvæðið, Stór-Manílasvæðið tekur til 17 borga og sveitarfélaga og þar búa rúmlega 10 milljónir manns. Maníla ein og sér hefur 1,5 milljón íbúa og er næst fjölmennesta einstaka borg landsins næst á eftir Quezon borg fyrrum höfuðborg landsins sem telst og til stór Manílasvæðisins.
Á 16. öld óx Maníla frá því að vera fámennar búðir múslima á bökkum Pasig árinnar í aðsetur spænska nýlenduveldisins. Þónokkur hluti borgarinnar eyðilagðist í seinni heimsstyrjöldinni.
Í borgini búa 1.581.082 manns á 38,55 km², því er Maníla þéttbýlasta borg heims með 41.014 íbúa/km² (sjöttahverfið er þéttbýlast en þar búa 68.266 en svo eru fyrstu tvö hverfin (Tondo) með 64.936 og 64.710 íbúa á km², respectively, en hverfi 5 er strjábýlast með 19.235 íbúa/km²). Dagsdaglega bætist önnur milljón við þegar námsmenn sækja skóla og starfandi fólk mætir til vinnu.
Opinbert tungumál er Filipínska, sem byggir á Tagalog. Þar við bæstis að enskunnátta er nokkuð almenn, að auki má geta þess að brot af fyrirfólki Filipseyja talar spænsku vegna nýlenduáhrifa.
Háskólabeltið hýsir flesta þá háskóla sem eru á stór Manílasvæðinu, til þess teljast m.a. Háskóli Filippseyja - Maníla, De La Salle Háskólinn og Háskóli heilags Tómasar
|
Höfuðborgir í Asíu |
| Mið-Asía |
Astana, Kasakstan · Bishkek, Kirgisistan · Dushanbe, Tadsjikistan · Askabat, Túrkmenistan · Tasskent, Úsbekistan |
| Austur-Asía |
Beijing, Alþýðulýðveldið Kína · Taípei, Lýðveldið Kína (Taívan) · Tókýó, Japan · Úlan Bator, Mongólía · Pjongjang, Norður-Kórea · Seúl, Suður-Kórea |
| Suður-Asía |
Dakka, Bangladess · Timfú, Bútan · Nýja Delí, Indland · Male, Maldíveyjar · Katmandú, Nepal · Islamabad, Pakistan · Kólombó, Srí Lanka |
| Suðaustur-Asía |
Dili, Austur-Tímor · Bandar Seri Begawan, Brúnei · Maníla, Filippseyjar · Djakarta, Indónesía · Phnom Penh, Kambódía · Vientiane, Laos · Kúala Lúmpúr (opinber) og Putrajaja (stjórnsetur), Malasía · Naypyidaw, Mjanmar · Singapúr, Singapúr · Bangkok, Taíland · Hanoí, Víetnam |
| Suðvestur-Asía |
Kabúl, Afganistan† · Jerevan, Armenía · Bakú, Aserbaídsjan · Manama, Barein · Tíblisi, Georgía · Teheran, Íran · Bagdad, Írak · Tel Avív, Ísrael · Aden, Jemen · Amman, Jórdanía · Doha, Katar · Kúveit, Kúveit · Nikósía, Kýpur · Beirút, Líbanon · Múskat, Óman · Abu Dhabi, Sameinuðu arabísku furstadæmin · Jedda, Sádi-Arabía · Damaskus, Sýrland · Ankara, Tyrkland |
|
†Afganistan er oft talið vera í Mið- eða Suður-Asíu ·
|
|