Verkfæri |
ListsundListsund er íþrótt sem blandar saman þáttum úr sundi, fimleikum og dansi. Þátttakendur geta verið einstaklingar, pör eða hópar. Í listsundi fara þátttakendur gegnum ákveðnar samhæfðar hreyfingar í vatninu við tónlistarundirleik. Listsund var þróað í Kanada um aldamótin 1900 og var stundum kallað „vatnsballett“. Íþróttin er nánast eingöngu stunduð af konum. Listsund hefur verið ólympíugrein frá 1984. Alþjóða sundsambandið hefur yfirumsjón með alþjóðlegum keppnum í greininni. |