|
|
Halldór PéturssonHalldór Pétursson (26. september 1916 – 16. mars 1977) var íslenskur myndlistarmaður og frægur skopmyndateiknari. Foreldrar hans voru Pétur Halldórsson og Ólöf Björnsdóttir. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1935 hélt hann til náms við Kunsthåndværkskolen í Kaupmannahöfn og lauk þaðan prófi í auglýsingateiknun árið 1938. Að námi loknu starfaði Halldór við ýmis konar teiknivinnu fram til ársins 1945. Á árunum 1942-45 stundaði Halldór nám við Minneapolis School of Art og Art Students League í New York. Frá þeim tíma myndskreytti Halldór bækur og teiknaði skopteikningar en fékkst lítið við auglýsingateiknun. Halldór Pétursson teiknaði marga jólasveina á ferli sínum. Einnig teiknaði hann nokkrar myndir af Grýlu, frægust þeirra er Grýlan í Vísnabókinni. Halldór var einn af stofnendum Félags íslenskra teiknara. Hann lést árið 1977. Tekin var saman bók árið 1980 þar sem mörgum myndum listamannsins var safnað saman. [breyta] Heimildir |