Egils saga

Egils saga, Egils saga Skallagrímssonar, Sagan af Agli Skallagrínssyni[1] eða Egla (borið fram Eigla) er ein elsta Íslendingasagan. Aðalpersóna hennar er Egill Skallagrímsson, 10. aldar höfðingi, vígamaður og ljóðskáld. Talið er að hún sé rituð af Snorra Sturlusyni á öndverðri 13. öld. Egla kom fyrst út í prentaðri útgáfu árið 1782. Egils saga er einkum þekkt fyrir þann mikla og fornan skáldskap sem hún hefur að geyma. Mörg afrit af handriti Eglu hafa verið rituð eftir 13. öldina en einungis tvö þeirra frá 19. öld eru varðveitt í Landsbókasafninu. Eldri afrit en frá árinu 1700 eru geymdar í erlendum bókaskemmum.

Egils saga er ólík Íslendingasögunum að því leyti að hún gerist að mestu annars staðar en á Íslandi. Egils saga er saga Egils Skallagrímssonar. Hann ólst upp á Borg á Mýrum, þar sem hann verður strax í æsku mikið skáld og bardagamaður. Egill ferðast víða um Norðurlöndin, Eystrasaltslöndin og England. Hann á í deilum við jafnt merka sem ómerka menn. Hann er einn fárra víkinga sem nær háum aldri og deyr hann á Mosfelli hjá fósturdóttur sinni Þórdísi undir lok 10. aldar.

Með hinstu orðum sínum[2] minnist Eigill á laug er hann mælir:

 
Egils saga
Vil eg fara til laugar[3]/Vil ek fara til laugar (l. Volo enim ad calidum lavecrum ire.)[4]
 
Egils saga
 
— Egill mælir í Egils sögu

Jón Grunnvíkingur var til þess fenginn að leggja mat á Íslendingasögur, hvort þýða skyldi á dönsku og prenta síðan. Hann segði um Eglu: Má translaterast, en ei þrykkjast. Nóta, hversu svívirðilega Agli fórst við sinn merkilega vin og Wohltäter, Arinbjörn. [5]

[breyta] Heimildir

  1. Bókin á Google Books
  2. Læknablaðið- Heitar laugar á Íslandi til forna
  3. Egils saga á Snerpu
  4. Egils saga á Google Books
  5. Morgunblaðið 1990

[breyta] Tengill

Wikiheimild
Wikiheimild hefur upp á að bjóða frumtexta sem tengist:


Íslendingasögurnar

Bandamanna saga · Bárðar saga Snæfellsáss · Bjarnar saga Hítdælakappa · Brennu-Njáls saga · Droplaugarsona saga · Egils saga · Eiríks saga rauða · Eyrbyggja saga · Finnboga saga ramma · Fljótsdæla saga · Flóamanna saga · Fóstbræðra saga · Færeyinga saga · Grettis saga · Gísla saga Súrssonar · Grænlendinga saga · Grænlendinga þáttur · Gull-Þóris saga · Gunnars saga Keldugnúpsfífls · Gunnlaugs saga ormstungu · Hallfreðar saga vandræðaskálds · Harðar saga og Hólmverja · Hávarðar saga Ísfirðings · Heiðarvíga saga · Hrafnkels saga Freysgoða · Hrana saga hrings · Hænsna-Þóris saga · Kjalnesinga saga · Kormáks saga · Króka-Refs saga · Laxdæla saga · Ljósvetninga saga · Reykdæla saga og Víga-Skútu · Svarfdæla saga · Valla-Ljóts saga · Vatnsdæla saga · Víga-Glúms saga · Víglundar saga · Vopnfirðinga saga · Þorsteins saga hvíta · Þorsteins saga Síðu-Hallssonar · Þórðar saga hreðu

  Þessi bókmenntagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.


SEO Tools system wymiany linków system wymiany linków SEO Tools tanie kredyty gotówkowe kreatyna Plaza 3 star hotel Los Angeles krynica noclegi Sejm Tyk