Byggingarlist eða arkitektúr er sú starfsgrein sem felst í hönnunbygginga og ýmissa annarra mannvirkja. Smærri byggingar eru yfirleitt hannaðar alfarið af arkitektum, en stærri byggingar eru unnar í samvinnu arkitekta, sem einbeita sér að fagurfræði og almennu notagildi og byggingaverkfræðinga, sem reikna burðarþol og sinna tæknilegum þáttum.