|
|
Bangkok
Bangkok (á taílensku: Krung Thep, กรุงเทพฯ) er höfuðborg og stærsta borg Taílands. Árið 1990 var íbúafjöldi hennar 8.538.610. Borgin er staðsett á austurbakka Chao Phraya á stuttu áður en hún rennur út í Taílandsflóa. Hún var í upphafi hafnar- og viðskiptamiðstöð undir stjórn þáverandi höfuðborgar (sem hét Ayutthaya) og hét þá Bang Makok. Þegar þáverandi höfuðborg féll í hendur Búrma árið 1767 var höfuðborgin flutt á vesturbakka árinnar og var þar þangað til Rama I konungur byggði kastala sinn á austurbakkanum og endurskýrði borgina Krung Thep (sem þýðir Borg englanna). Í dag á nafnið Bangkok opinberlega aðeins við um lítinn hluta borgarinnar en er enn notað á vesturlöndum yfir hana alla. Bangkok er mjög fjölþjóðleg borg, með mikið af innflytjendum. Talið er að 50% íbúa borgiarnnar eigi ættir sínar að rekja til Kína. Bangkok er efnahagsleg miðstöð Taílands, þar eru allir helstu bankar landsins með höfuðstöðvar og flestra annarra stórfyrirtækja landsins. Ímynd borgarinnar á vesturlöndum er þó oft ansi neikvæð þar sem hún er þekkt fyrir að vera mikil miðstöð ólöglegra útgáfa á tónlist, kvikmyndum og öðru höfundaréttarvörðu efni.
|
Höfuðborgir í Asíu |
| Mið-Asía |
Astana, Kasakstan · Bishkek, Kirgisistan · Dushanbe, Tadsjikistan · Askabat, Túrkmenistan · Tasskent, Úsbekistan |
| Austur-Asía |
Beijing, Alþýðulýðveldið Kína · Taípei, Lýðveldið Kína (Taívan) · Tókýó, Japan · Úlan Bator, Mongólía · Pjongjang, Norður-Kórea · Seúl, Suður-Kórea |
| Suður-Asía |
Dakka, Bangladess · Timfú, Bútan · Nýja Delí, Indland · Male, Maldíveyjar · Katmandú, Nepal · Islamabad, Pakistan · Kólombó, Srí Lanka |
| Suðaustur-Asía |
Dili, Austur-Tímor · Bandar Seri Begawan, Brúnei · Maníla, Filippseyjar · Djakarta, Indónesía · Phnom Penh, Kambódía · Vientiane, Laos · Kúala Lúmpúr (opinber) og Putrajaja (stjórnsetur), Malasía · Naypyidaw, Mjanmar · Singapúr, Singapúr · Bangkok, Taíland · Hanoí, Víetnam |
| Suðvestur-Asía |
Kabúl, Afganistan† · Jerevan, Armenía · Bakú, Aserbaídsjan · Manama, Barein · Tíblisi, Georgía · Teheran, Íran · Bagdad, Írak · Tel Avív, Ísrael · Aden, Jemen · Amman, Jórdanía · Doha, Katar · Kúveit, Kúveit · Nikósía, Kýpur · Beirút, Líbanon · Múskat, Óman · Abu Dhabi, Sameinuðu arabísku furstadæmin · Jedda, Sádi-Arabía · Damaskus, Sýrland · Ankara, Tyrkland |
|
†Afganistan er oft talið vera í Mið- eða Suður-Asíu ·
|
|