|
|
Argentína
Argentína er land í Suður-Ameríku sunnaverðri. Það afmarkast af Andesfjallgarðinum í vestri og Atlantshafi í austri. Lönd, sem liggja að Argentínu eru Chile í vestri, Paragvæ og Bólivía í norðri, Brasilía og Úrúgvæ í norðaustri. Argentína gerir kröfu til Falklandseyja (sem Argentínumenn nefna Malvinaseyjar), Suður-Georgíu og Suður-Sandvíkureyja og loks til hluta af Suðurskautslandinu. Landið er næststærst að flatarmáli í Suður-Ameríku og hið áttunda í röðinni í heiminum. Cristina Fernandez de Kirchner er forseti landsins frá árinu 2007.
|