|
|
Öxnadalur
Hraundrangar gnæfa yfir Öxnadal að norðanverðu
Öxnadalur er djúpur dalur í Eyjafirði, gyrtur háum fjöllum. Hann er um 35 kílómetra langur frá mynni inn að Öxnadalsheiði og um hann fellur Öxnadalsá. Árið 1952 hóf skógræktarfélag Eyfirðinga skógrækt í dalnum. Innsti hluti dalsins er allur í eyði en þar er t.d. Bakkasel. [breyta] Eyðibýli í Öxnadal
|